September 06, 2010, 06:05:09 eh *
Velkomin/n, Gestur. Vinsamlega skráðu þig inn eða nýskráðu þig.
Fékkstu ekki netpóst til að virkja aðgang?

Innskráning með notandanafni, lykilorði og lengd viðsetu
   Heim   Hjálp Leit Innskráning Nýskráning  
Síður: [1]
  Prenta  
Höfundur Umræða: Skráningarsamningur - Spjallreglur  (Lesið 1407 sinnum)
Dóra Ósk
Vefstjóri
Brúðkaupssinni
*****

Karma: +2/-0
Innlegg: 14


Skoða prófíl
« á: Mars 06, 2007, 11:54:40 eh »

Með notkun þinni á Spjallvef Brúðkaupsvefs.is samþykkir þú að hlýta eftirfarandi skilmálum:

Þér er óheimilt að skrá þig undir röngu nafni eða villa á þér heimildir með því segjast vera einhver sem þú ert ekki.

Þér er óheimilt að gera öðrum upp skoðanir og níða eða baktala 3ja aðila hvort sem það er einstaklingur eða fyrirtæki.

Þér er óheimilt að beita aðra einelti, áreiti eða illvilja hér á vefnum.

Þér er óheimilt að auglýsa vörur eða þjónustu á vefnum nema í þar til gerðum spjallborðum sem sérstaklega eru merkt til slíkra nota.

Þér er óheimilt að brjóta landslög eða hvetja aðra til þess að brjóta landslög með notkun vefsins.

Þér er óheimilt að birta nokkuð það sem getur sært almenna blygðunarkennd fólks.  Þar með talið fordóma, blótsyrði, klám, hótanir, persónuupplýsingar annarra, áreitandi ummæli, einkamál annarra og annað í þeim dúr.

Þú mátt ekki birta neitt höfundarréttarverndað efni sem ekki er þitt eigið, nema með skriflegu leyfi höfundarrétthafa þess.

Spamm, flóð, auglýsingar á röngum stöðum, keðjupóstur, pýramídastarfsemi og annað brask er algerlega bannað á vefnum.

Taktu til greina að það er illmögulegt fyrir vefstjórn Brúðkaupsvefs.is að staðfesta sannleiksgildi innleggja.  Mundu að við vöktum ekki kerfisbundið birt innlegg og er því ekki ábyrg fyrir innihaldi þeirra.

Við getum ekki ábyrgst áreiðanleika, nothæfi eða ítarleika upplýsinga sem birtar eru í innleggjum á vefnum.

Birt innlegg endurspegla skoðanir höfunda eingöngu en ekki Brúðkaupsvefs.is eða eiganda hans eða spjallstjórnar.

Sjáir þú innlegg sem þú telur vera brot á reglum vefsins þá hvetjum við þig að tilkynna það til spjallstjórnar eða vefstjórnar samstundis.

Vefstjórn og spjallstjórn Brúðkaupsvefs.is áskilur sér rétt til að fjarlægja innlegg sem okkur þykja ekki við hæfi eða vera brotleg við reglur vefsins.  Það er gert handvirkt.  Ekki er þó víst að slíkt gerist strax þar sem við erum ekki alltaf á vaktinni.

Reglur sem lúta að innleggjum gilda líka yfir prófíla meðlima.

Þú samþykkir að bera alfarið ábyrgð á þínum innleggjum og prófíl hér á vefnum.

Þú samþykkir að eigandi, vefstjórn og spjallstjórn vefsins og aðrir tengdir vefir bera enga skaðabótaábyrgð gagnvart þér eða öðrum vegna notkunar þinnar á vefnum.  Við áskiljum okkur rétt á að birta þitt rétta nafn ásamt öðrum nauðsynlegum upplýsingum ef það kemur upp formleg kvörtun eða lagaflækjur vegna aðstæðna sem koma upp í tengslum við notkun þinnar á vefnum

Við ætlumst til þess að þú veljir þér viðeigandi notandanafn við skráningu.  Um leið og þú skráir þig þá skuldbindur þú þig til að láta aldrei neinn annan en vefstjórann vita um lykilorð þitt.  Þetta er bæði þér til verndar vegna ábyrgðar þinnar á eigin skrifum sem og til að auka gildi skrifa þinna.  Svo mark sé á öllum takandi.

Þú samþykkir að nota aldrei undir neinum kringumstæðum aðgang annarra að spjallvefnum.

Við mælum með því að þú notir góða samsetningu lykilorðs á vefnum.  Besta samsetningin er blanda af litlum og stórum stöfum ásamt tölum.

Þegar þú hefur nýskráð þig og valið bæði notandanafn og lykilorð þá getur þú breytt prófílsupplýsingum þínum.  Sannleiksgildi og hreinleiki þeirra upplýsinga er á þína ábyrgð.  Vefstjórn áskilur sér rétt til að taka út rangar fullyrðingar og óviðeigandi efni í prófíl þínum fyrirvaralaust.

Vinsamlega taktu til greina að IP tala þín er skráð með öllum innleggjum þínum.  þetta er gert svo hægt sé að setja þá í bann sem brjóta skilmála skráningarsamnings Brúðkaupsvefs.is eða til að geta haft samband við vefveitu þeirra.  Það er þó aðeins gert ef brotið hefur verið grófleg gegn skilmálum samningsins.

Taktu einnig til athugunar að hugbúnaður vefsins býr til vefköku sem inniheldur nauðsynlegar upplýsingar svo sem notandanafn þitt og lykilorð sem vistuð er í safnskrá vafrara þíns.  Hún er til þess að viðhalda innskráningu þinni eða útskráningu.  Þessi hugbúnaður safnar ekki upplýsingum og sendir ekki aðrar upplýsingar í tölvu þína.


*****************************************
   ATHUGAÐU EFTIRFARANDI:
*****************************************

Brot á skilmálum þessa skráningasamnings varða brottrekstri þínum af vefnum og verður þá bæði lokað á IP tölu þína og notandanafn.  Brottrekstur getur verið tímabundinn eða eilífur.  Brottrekstur er almennt kallaður "bann" hér á vefnum.
Tilkynna til spjallstjóra   Skráð
Síður: [1]
  Prenta  
 
Stökkva yfir á: